Þegar Ari
fróði skrifaði fyrstu Íslandssöguna snemma á 12. öld minntist hann ekkert á
víkinga. Einkennilegt finnst sumum sem heyra talað um Íslendinga sem mikla
víkingaþjóð.
Halldór
Laxness var meðal þeirra sem hnaut um fjarveru víkinganna hjá Ara. 'Hann virðist
ekki einu sinni kannast við orðið. Ef dæma skyldi eftir fróðleik sem í
Íslendingabók er veittur virðast ekki líkur á því að nokkru sinni hafi verið
víkingar á Íslandi. Víkingar eru innanstokksmunir úr sagnaskáldskap sem komst í
tísku eftir daga Ara,' skrifaði Halldór eitt sinn.Þetta passar. Það voru arftakar Ara í rithöfundastétt á Íslandi á 13. öld sem bættu úr skorti á víkingum á íslensku bókfelli. Í konungasögunum eiga Noregskonungarnir Ólafur Tryggvason og Ólafur helgi Haraldsson fortíð sem ungir víkingar og í liði þeirra eru Íslendingar.. Ýmsir kappar Íslendingasagna með Egil Skallagrímsson í fararbroddi fara í víking og gera garðinn frægan. Og mikil ævintýri eru sögð af víkingum í Fornaldarsögunum.
Hvaða heimildir um víkinga höfðu íslenskir lærdómsmenn á 13. öld sem Ari fróði hafði ekki eða kaus að sniðganga? Voru víkingar meðal landnámsmanna Íslands? Voru menn frá Íslandi þátttakendur í ránsferðum víkingum til Bretlands og meginlands Evrópu? Lifðu Íslendingar víkingalífi til forna?
Og hvað merkir orðið 'víkingur'? Hverjir voru víkingar? Í sögubókum er sagt að víkingaöldin í Evrópu hafi staðið frá því um 800 og fram til um 1070. Hvað varð um víkingana eftir þann tíma?
Þetta er nokkrar þeirra spurninga sem ég fjalla um í litlu kveri á ensku sem er komið út og heitir Icelandic Vikings. Veröld gefur út.